Skráningu á Unglingalandsmót lýkur í kvöld

Davíð Þór Sigurðsson, formaður íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum, dró fána UMFÍ að húni í dag á einni af fánaborgunum sem búið er að koma fyrir á Egilsstöðum. Mynd: UMFÍ
Davíð Þór Sigurðsson, formaður íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum, dró fána UMFÍ að húni í dag á einni af fánaborgunum sem búið er að koma fyrir á Egilsstöðum. Mynd: UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina og búast keppnishaldarar við um og yfir 1.000 keppendum á aldrinum 11-18 ára ásamt foreldrum og forráðamönnum þeirra. Alls er gert er ráð fyrir allt að 10.000 gestum í bænum frá öllu landinu á meðan mótið fer fram dagana 4.- 6. ágúst og spáir Veðurstofa Íslands úrvals keppnisveðri, þurrki og logni.

Nokkur röskun verður á daglegu lífi bæjarbúa á meðan Unglingalandsmóti UMFÍ stendur um verslunarmannahelgina en m.a. verður nokkrum götum lokað í bænum og nágrenni hans og munu strætisvagnar aka fólki til að draga úr bílaumferð í bænum.

Á heimasíðu UMFÍ segir að undirbúningur sé í fullum gangi fyrir mótið á Egilsstöðum, búið  að gera frábæra stíga fyrir keppni í fjallahjólreiðum og verið að marka tjaldstæðin fyrir keppendur og fjölskyldur þeirra sem sumar hverjar koma langt að. Mikið er í boði fyrir alla fjölskylduna á Unglingalandsmóti UMFÍ. Námskeið í leikjum, fimleikum, frisbí og margt fleira. Á kvöldin verða tónleikar með flottasta tónlistarfólki þjóðarinnar.

Ákveðið var í gær að halda skráningum áfram opnum fram að miðnætti í kvöld, það er fram að lokum dagsins 1. ágúst. Skráning fer fram á www.umfi.is

Fleiri fréttir