Skráningu að ljúka á enskunámskeið

Í dag, föstudaginn 28. mars lýkur skráningu á enskunámskeið sem Farskólinn hyggst bjóða uppá strax í næstu viku, ef næg þátttaka fæst, og verður tilkynnt eftir helgi um nánari tímasetningar. Um er að ræða 20 klst. talnámskeið þar sem fyrst og fremst er farið í hagnýta þætti, en málfræði sleppt að mestu. Námskeiðið kostar kr. 20.800.- og eins og venja er til munu stéttarfélögin niðurgreiða þetta verulega, eða um allt að 75%.

Kennari á námskeiðinu verður Katharina Schneider, forstöðumaður Þekkingarsetursins á Blönduósi og kennslustaður Þverbraut – Salur Samstöðu. Vinsamlega skráið ykkur hjá Farskólanum í síma 455-6010 eða í tölvupóstfangið farskolinn@farskolinn.is.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir