Skrifstofunám á vegum Farskólans

Skrifstofuskóli ætlaður Blönduósbúum og nærsveitamönnum hefst í febrúar ef næg þátttaka fæst en skólinn er hannaður af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið samþykkt að meta megi námið til allt að 18 eininga til styttingar á námi í framhaldsskóla.

Helst námsgreinar eru: Sjálfsstyrking, námstækni, tölvu- og upplýsingatækni, verslunarreikningur, bókhald, enska og fleira.

Kennt verður þrjá daga vikunnar, 240 kennslustundir.

Sjá nánar á slóðinni: http://frae.is/namsskrar/skrifstofuskolinn

Fleiri fréttir