Skúrir eða rigning í dag
Sunnan 5-10 m/s og skúrir eða rigning er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Vestlægari á morgun og lægir undir kvöld og þurrt. Hiti 6 til 11 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Suðaustan 8-15 m/s, hvassast SV- og V-lands. Víða rigning, en þurrt á NA- og A-landi fram yfir hádegi. Suðvestlægari og skúrir S- og V-lands seinnipart dagsins. Hiti 6 til 12 stig.
Á fimmtudag:
Suðvestan 8-13 m/s og rigning eða skúrir, en hægari og úrkomulítið A-lands. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast austast.
Á föstudag:
Norðan 5-13 m/s og dálítil rigning N-til, en vestlægari og skúrir syðra. Hiti 4 til 11 stig, mildast við S-ströndina.
Á laugardag:
Sunnanátt og rigning, en úrkomulítið NA-til. Hiti 7 til 12 stig.
Á sunnudag:
Suðvestanátt og rigning eða skúrir, en að mestu þurrt A-lands.