Skúrir síðdegis

Sunnan 10-15 m/s og dálítil rigning er á Ströndum og Norðurlandi vestra, vestlægari og skúrir síðdegis. Hiti 8 til 14 stig. Hægari og bjart með köflum á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag og fimmtudag:

Hæg austlæg eða breytileg átt. Dálítil rigning með köflum A-til, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 7 til 13 stig.

Á föstudag:

Norðaustan 3-8 m/s en hæg breytileg átt SV-til. Skýjað og víða dálítil rigning eða súld, en þurrt að kalla á SV-landi fram eftir degi. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast V-lands.

Á laugardag:

Suðaustanátt, 3-8 m/s og skýjað með köflum en þurrt að mestu. Hiti 7 til 13 stig.

Á sunnudag:

Vaxandi suðaustanátt, 10-15 SV-til síðdegis og rigning en 5-10 og þurrt NA-lands. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:

Hvöss suðaustan og síðar suðvestanátt. Rigning en úrkomulítið NA-til. Milt í veðri.

Fleiri fréttir