SKVH og KS hækka verð á nautakjöti

Kjötsala á landinu hefur aukist jafnt og þétt undanfarin misseri og sláturleyfishafar keppast um að laða til sín kjötframleiðendur en nú hafa Sláturhús KVH á Hvammstanga og kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga hækkað verð á nautakjöti. Tekur nýr verðlisti félaganna gildi frá og með deginum í dag.

 

Á vef Landssamtaka kúabænda kemur fram að Bændasamtökin hafi tekið saman nýjar framleiðslu- og sölutölur kjötgreina fyrir júní en þar kemur fram að sala á nautgripakjöti í mánuðinum var töluvert meiri en hún var í sama mánuði í fyrra og að ársfjórðungssalan hafi verið 4,2% meiri. Árssalan, þ.e. salan sl. 12 mánuði, er nú 4.064 tonn sem er aukning um heil 7,3% miðað við síðustu 12 mánuðina þar á undan.

Heildarframleiðsla nautgripakjöts sl. 12 mánuði var 4.071 tonn, en framleiðslan í mánuðinum var 361 tonn og nam sala nautgripakjöts í mánuðinum 357 tonnum. Sé horft til sundurliðunar á sölu nautgripakjöts í mánuðinum var sem fyrr mest sala í ungnautakjöti eða 215 tonn og á 12 mánaða grunni nemur ungnautakjötssalan 2.305 tonnum eða 56,7% af heildarsölunni. Sala á kýrkjöti síðustu 12 mánuði var 1.505 tonn eða sem nemur 37,0 af heildarsölunni.

Sjá nánar á Naut.is 

Fleiri fréttir