Skýjað og þurrt í dag

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er austan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast á annesjum. Skýjað og þurrt að kalla en rigning af og til í nótt og á morgun. Hiti 2 til 8 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Sunnan og suðaustan 5-10 og lítilsháttar rigning, en skýjað með köflum og þurrt á NA-verðu landinu. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast NA-til.

Á fimmtudag:

Suðvestan 3-10 og lítilsháttar rigning eða súld vestantil, en víða léttskýjað um landið austanvert. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:

Suðvestanátt, víða 5-10 og væta vestantil, einkum síðdegis en bjartviðri fyrir austan. Hiti 5 til 10 stig.

Á laugardag:

Austan og suðaustanátt. Rigning með köflum um landið sunnanvert en úrkomulítið fyrir norðan. Fremur milt í veðri.

Á sunnudag:

Gengur í norðanátt og úrkomu fyrir norðan en bjartviðri syðra og kólnandi veðri, einkum norðantil.

Á mánudag:

Útlit fyrir svala breytilega átt og lengst af þurrt veður.

Fleiri fréttir