Skylt verður að upprunamerkja kjöt

Ný reglugerð Evrópusambandsins um merkingar matvæla (food information to consumers) var birt 22. nóvember s.l. Reglugerðin verður innleidd á Íslandi á næstu misserum og mun leysa af hólmi núverandi reglugerðir um merkingu matvæla og merkingu  næringargildis matvæla.

 

Meðal nýjunga í nýju reglugerðinni er að lágmarksleturstærð er skilgreind. Skylt verður að næringargildismerkja flest matvæli (orku, fitu og mettaða fitu, kolvetni, sykur, prótein og salt). Skylt verður að upprunamerkja kjöt og merkja samsett kjöt sem „mótað kjöt“. Það sama mun eiga við um óunnar fiskafurðir. Ofnæmis- og óþolsvalda ber að merkja á áberandi hátt með lita- eða leturbreytingu skv. reglugerðinni. Frestur til að uppfylla reglurnar í löndun Evrópusambandsins er 3 ár (5 ár fyrir næringargildismerkingar). Fresturinn rennur trúlega út á sama tíma hér á landi.

Fleiri fréttir