Skyndihjálparnámskeið á Blönduósi
Skyndihjálparnámskeið verður haldið á Blönduósi 12. – 13. maí nk., ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
Samkvæmt tilkynningu frá stjórn RKÍ A-Húnavatnssýsludeildar, birt á Húna.is, er námskeiðið 12 klukkustundir (16 kennslustundir) og er metið til eininga í flestum framhaldsskólum, til aukinna ökuréttinda og víðar.
„Til öryggis er þeim sem þurfa skyndihjálparþekkingu sem hluta af starfsréttindum eða námi ráðlagt að leita staðfestingar hjá viðkomandi menntastofnun hvort námskeiðið sé tekið gilt,“ er tekið fram í tilkynningu.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má fá finna á heimasíðu RKÍ; www.rki.is eða hringja í síma 6917256. Skráning á námskeiðið má senda á netfangið: akd@simnet.is
Vakin er athygli á því að mörg stéttarfélög veita félagsmönnum sínum styrki til starfsnáms, símenntunar og tómstundanáms.