Skýrsla um vefstóla í Kvennaskólanum á Blönduósi

Vefstólar í Kvennaskólanum á Blönduósi. Myndin er tekin árið 2012. Mynd: BÞ
Vefstólar í Kvennaskólanum á Blönduósi. Myndin er tekin árið 2012. Mynd: BÞ

Þekkingarsetur og samstarfsaðilar, Textílsetur Íslands og Vinir Kvennaskólans, hlutu styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra í vor til að gera skýrslu um vefstóla í Kvennaskólanum á Blönduósi. Skýrslan var unnin af Ragnheiði Björk Þórsdóttur vefara og vefnaðarkennara nú í október.

Vefstólarnir í Kvennaskólanum eru fimmtán samtals, þar á meðal tveir innfluttir prufuvefstólar. Íslensku vefstólarnir eru taldir vera yfir 75 ára gamlir og hafa sumir þeirra verið nýttir af listamönnum textíllistamiðstöðvarinnar undanfarin ár. Markmið með verkefninu var að m.a. gera úttekt á vefstólunum og láta meta ástand þeirra, til að auðvelda eðlilegt viðhald og varðveislu. 

Vefstólarnir voru allir tegundargreindir, ljósmyndaðir, og farið var yfir þá með Kristínu Jónsdóttur fyrrverandi vefnaðarkennara og smiðnum Hlyni Tryggvasyni. Gerðar voru tillögur til úrbóta. Skýrslan greinir einnig frá ástandi vefstofu, setbekkja og annarra tækja og tóla er tilheyra vefstofunni í Kvennaskólanum og ítrekar mikilvægi þess að viðhalda þessari mjög merkilegu stofu.

Fleiri fréttir