Slæm vinnubrögð stjórnvalda
Stjórn SSNV átelur samráðsleysi ríkisstjórnar og þau vinnubrögð sem viðhöfð eru þegar boðuð er grundvallarstefnubreyting á veitingu heilbrigðisþjónustu í landinu. Þetta kemur fram í bókun sem gerð var á fundi stjórnar SSNV sem haldinn var á Hvammstanga þann 4. október sl.
Bókunin er svohljóðandi:
„Stjórn SSNV lýsir yfir andstöðu við áframhaldandi stórfelldan niðurskurð á fjárframlögum til heilbrigðisstofnana á Norðurlandi vestra sem kynnt er í frumvarpi til fjárlaga árið 2012. Boðaður niðurskurður mun vafalítið valda fækkun starfa á svæðinu, þá sérstaklega kvennastarfa, sem gengur þvert geng hugmyndum ríkisstjórnar Íslands um kynjaða hagstjórn. Niðurskurðurinn rýrir einnig búsetuskilyrði stórlega og veltir auknum kostnaði yfir á íbúa sem sækja þurfa heilbrigðisþjónustu um langan veg.
Loks átelur stjórnin samráðsleysi og þau vinnubrögð sem viðhöfð eru þegar boðuð er grundvallarstefnubreyting á veitingu heilbrigðisþjónustu í landinu. Þetta er gert án þess að fyrir liggi opinber stefna um veitingu þjónustunnar sem og án þess að fyrir liggi greining á samfélagslegum áhrifum niðurskurðarins sem og áhrifa á önnur kerfi s.s félagsþjónustu sveitarfélagana. Þessi vinnubrögð ganga þvert gegn loforðum um aukið samráð ríkisins við heimamenn sem unnið að undir merkjum Ísland 20/20.“