Slasaðist í fjallgöngu

Maður liggur mikið slasaður á Landspítala eftir að hafa fallið í fjallgöngu í austanverðu Vatnsdalsfjalli í A-Húnavatnssýslu. Maðurinn var einn á ferð og gekk langa leið alblóðugur og beinbrotinn. Á Mbl.is segir að það hafi verið vegfarandi sem átti leið um Vatnsdal í fyrrakvöld sem sá manninn liggja í vegkanti við bíl sinn. Hann var alblóðugur og sýnilega mikið slasaður. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnunina Blönduósi og þaðan með sjúkraflugvél á Landspítalann.

Að sögn lögreglunnar á Blönduósi bendir flest til þess að maðurinn hafi fallið í fjallinu og rotast því hann man ekkert eftir því sem gerðist. Eftir að hann rankaði við sér gekk hann talsvert langa leið að bílnum þar sem vegfarandi kom auga á hann. Fjallið er erfitt yfirferðar á þessum stað og talsvert miklar skriður í hlíðum þess.

Maðurinn er Íslendingur en hann var að skoða plöntur þegar hann hrapaði. Maðurinn fékk höfuðhögg og bein brotnuðu á efri hluta líkama hans.

/Mbl.is

Fleiri fréttir