Slátrun hjá SAH lauk í gær
Sauðfjárslátrun hjá SAH Afurðum lauk þetta haustið á hádegi í gær. Aldrei fyrr hefur jafnmörgu fé verið slátrað hjá félaginu á einu ári, og er heildarslátrun haustsins komin í um 106.300 fjár. Meðalvigt endaði rétt neðan við 16 kg. sem er svipað og í fyrra.
Á heimasíðu SAH segir að seinna í nóvember verði auglýstur sláturdagur og eru bændur hvattir til að hafa samband við sláturhússtjóra hafi þeir þá heimt fé sem þarf að færa til slátrunar.