Slökkviliðsmenn fá þjálfun í að umgangast fjölmiðla
Kvikmyndagerðamenn frá Saga Film festu á filmu æfingu Brunavarna A-Hún fyrr í vikunni þar sem slökkviliðsmenn æfðu klippivinnu með sjúkraflutningamönnum á vettvangi umferðarslyss.
Á æfingunni notaðist slökkviliðið við nýjan klippibúnað sem slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lánað tímabundið til félaga sinna í A Hún. en líkt og Feykir hefur áður greint frá er klippibúnaðir Blönduósinga úreltur og þjónar ekki lengur tilgangi sínum.
Æfingin tók í alla staði mjög vel. Aðstæður voru sem næst því að vera eins raunverulegar og hægt var. "Slösuðum" einstaklingum var bjargað úr bílflaki bifreiðar sem hafði endað í skurði eftir útafakstur. Aðstæðurnar voru erfiðar og þurftu viðbragðsaðilar að leysa æfinguna líkt og væri í raunveruleikanum.
Myndir af æfingunni er hægt að sjá inni á heimasíðu Brunavarna A-Hún. www.slokkvibill.is.