Slökkviliðsstjórinn segir upp

Óvissuástand er komið upp hjá Brunavörnum Austur Húnavatnssýslu eftir að Hilmar Frímannsson slökkviliðsstjóri sagði upp störfum í síðustu viku. Hilmar segist ósáttur við niðurskurð fjárveitinga til málaflokksins og geti ekki sætt sig við að öryggisstigið sé tekið niður á þennan hátt.

-Það hefur verið ljóst alveg frá því að þessi hugmynd kom fram, með skerðingu á bakvöktum, að ég væri ekki sáttur við þær sagði Hilmar en þessi aðgerð kom fram í fjárhagsáætlanagerð Blönduósbæjar rétt fyrir áramót. -Þetta er eitt af því sem ég get ekki sætt mig við að öryggisstigið sé tekið svona niður. Hilmar segir að ekki hafi verið rætt við hann af hálfu sveitarfélagsins eftir að hann lagði inn umsóknina.  -Ekki orð.

Að sögn Hilmars hefur fyrirkomulagið sl. 2 ár verið á þann veg að þrír menn voru á bakvakt eftir vinnutíma slökkviliðsstjóra á virkum dögum og um helgar. -Nú verður fækkað niður í einn mann um helgar þannig að enginn er skyldugur til að vera tiltækur á vikum kvöldum og gæti komi til þess að enginn væri við á þeim tíma, og aðeins einn  um helgar. –Það finnst mér vera frekar lágt öryggisstig, segir Hilmar.

Fleiri fréttir