Slökkvitækjaþjónusta hefur rekstur á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
17.02.2013
kl. 08.29
Nýtt fyrirtæki sem nefnist Slökkvitækjaþjónusta Norðurlands hefur hafið rekstur á Blönduósi. Fyrirtækið tekur að sér að þjónustuskoða, endurhlaða og hlaða slökkvitæki af flestum gerðum og stærðum. Einnig er hægt að nálgast flestar gerðir af reykskynjurum, eldvarnarteppum og öðrum eldvarnarbúnaði.
Fyrirtækið er með aðstöðu í slökkvistöðinni á Blönduósi og tekur við tækjum eftir hádegi kl. 13:00 til 17:00 mánudaga til föstudaga.
Nánari upplýsingar gefur Heiðar í síma 844 7579.
Heimild: Glugginn