Slydda eða rigning á aðfangadag
Veðurstofan spáir minnkandi vestanátt og úrkomulitlu á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag. Þá snýst hann í norðlæg átt 5-10 og él síðdegis en 8-15 og snjókoma í kvöld. Suðvestan 5-10 og él á morgun. Hiti um og undir frostmarki síðdegis.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag (aðfangadagur jóla):
Suðvestan 15-20 m/s og slydda eða rigning en norðvestlæg átt 13-18 og snjókoma NV-til. Suðvestan og vestan 8-13 síðdegis með éljum, síst þó A-lands, en hvassari S- og V-lands um kvöldið. Vægt frost.
Á sunnudag (jóladagur) og mánudag (annar í jólum):
Suðvestanátt, víða 8-13 m/s og él, en bjartviðri að mestu á NA- og A-landi. Frost 0 til 10 stig, mildast við suður ströndina.
Á þriðjudag:
V-læg átt og él V-til annars yfirleitt bjartviðri. Frost um allt land.
Á miðvikudag:
SV-læg átt og skúrir eða slydduél og heldur hlýnandi.
Spá gerð: 22.12.2011 08:41. Gildir til: 29.12.2011 12:00.