Slydda og snjókoma
Ekki hefur það farið framhjá neinum að leiðinda veður hefur verið ráðandi á landinu undanfarinn sólarhring en einna verst hefur það verið SA-lands og á sunnanverðum Austfjörðum. Áfram er búist við stormi eða roki (20-28 m/s) fram á kvöld. Illviðrinu fylgja mjög snarpar vindhviður (yfir 40 m/s), einkum SA-lands og á sunnanverðum Austfjörðum. Einnig er búist við talsverðri eða mikilli úrkomu austast á landinu.
Veðurspá fyrir Strandir og Norðurland vestra er á þessa leið:
Norðan 18-23 m/s og slydda eða snjókoma, en hægara og úrkomuminna síðdegis, 13-18 með kvöldinu. Norðan 10-15 og dálítil rigning eða slydda á morgun. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðlæg átt, 10-18 m/s, hvassast við A-ströndina. Rigning eða slydda N- og A-lands, en annars bjart með köflum. Heldur hægari síðdegis. Hiti 0 til 4 stig fyrir norðan, en allt að 11 stigum syðra.
Á miðvikudag:
Breytileg átt, 3-8 m/s og skúrir eða slydduél N- og A-lands, en annars bjartviðri. Hlýnar lítið eitt.
Á fimmtudag og föstudag:
Austlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið á N-landi. Hiti 3 til 10 stig.
Á laugardag:
Hæg norðlæg átt með skúrum eða éljum fyrir norðan, en vestlægari bjartviðri syðra. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Útlit fyrir vaxandi austanátt með rigningu S-til.