Smábæjaleikar 2014 í fullum undirbúningi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
07.03.2014
kl. 08.15
Undirbúningur fyrir Smábæjaleika Arion banka 2014 á Blönduósi er kominn á fullt skrið. Mótið verður dagana 21. – 22. júní og verður keppt í 4. 5. og 6. flokki karla og kvenna og 7. og 8. flokki blandað lið. Að vanda er mótið hugsað fyrir minni bæjarfélög þó einhverjar undantekningar hafi verið gerðar á því.
Dagskráin hefst á föstudeginum 20. júní en keppnin svo daginn eftir. Þátttökugjald er það sama og í fyrra eða 8.500 fyrir keppendur en innifalið í verðinu er gisting í eina eða tvær nætur, allar máltíðir, sundferð og öll önnur afþreying á vegum mótsins.
Skráningarblað leikanna er komið inn á vef Hvatar.