Smáskúrir í landshlutanum í kvöld
Norðaustan 5-10 m/s og skýjað verður á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag en úrkomulítið. Suðaustan 3-8 og smáskúrir í kvöld. Hiti 5 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Austan 3-10 m/s. Bjartviðri V-til á landinu, en þykknar upp síðdegis. Súld eða rigning A-lands. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á SV- og V-landi.
Á fimmtudag:
Norðaustan og austan 5-13 m/s. Dálítil rigning með köflum, en yfirleitt þurrt NV-til á landinu. Hiti 2 til 10 stig, svalast NA-lands.
Á föstudag og laugardag:
Norðaustanátt og lítilsháttar væta, en bjartviðri á S- og SV-landi. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag og mánudag:
Austan- og norðaustanátt. Smáskúrir syðra, en stöku él fyrir norðan. Svalt í veðri, einkum NA-lands.