Smíða Helluskeifur af miklum móð

Rúnar og Sesselja skeifnasmiðir á Skagaströnd. Mynd: PF.
Rúnar og Sesselja skeifnasmiðir á Skagaströnd. Mynd: PF.

Þau Rúnar Jóhannsson og Sesselja Guðmundsdóttir á Skagaströnd stunda skeifnasmíði yfir vetrarmánuðina en þau keyptu þekkt framleiðslufyrirtæki á því sviði og fluttu á staðinn fyrir rúmu ári. Segja þau að hvatinn að kaupunum hafi verið sá að Rúnar hafi vantað eitthvað að gera til að fylla upp í tómarúm sem skapast yfir vetrarmánuðina. Feykir kíkti í heimsókn og forvitnaðist um tilurð kaupanna og framleiðsluna.

„Við sáum þetta auglýst haustið 2014 og fórum þá vestur í Stykkishólm og skoðuðum þetta. Vorum reyndar búin að sjá þetta auglýst á Hellu fyrir átta árum síðan, áður en þetta fór í Stykkishólm. Við sáum auglýsinguna en gerðum ekkert með hana,“ segir Rúnar aðspurður um  áhugann og kaupin á Helluskeifum. Þegar fyrirtækið var auglýst í seinna skiptið fóru þau hjón í Stykkishólm og skoðuðu vélar og búnað, áhugasöm um að eignast fyrirtækið. Segir Rúnar að í byrjun árs 2015 hafi verið orðið ljóst að  fjármagn fengist til kaupanna. „Við fórum þá aftur í Stykkishólm í apríl en þá fannst bæði okkur og seljandanum of seint að taka þetta, upp á að þá væri sumartraffíkin að byrja. Hættan væri að það gæti allt farið í vitleysu hjá manni að vera ekki kominn með neina þjálfun í smíðinni,“ segir Rúnar og Sesselja tekur undir og segir að það hefði líka átt eftir að standsetja vélar og koma öllu fyrir.

Rúnar með glóandi heitt járnið. Mynd: PF.Það varð úr að samkomulag varð á milli kaupenda og seljenda að láta þetta bíða til haustsins.
„Við fórum svo um veturinn, eða 14. desember 2015, og náðum í þetta. Komum með vélarnar daginn eftir og komum þeim inn sextánda, rétt áður en skall á stórhríð. Við rétt náðum því að koma þessu inn í hús, segir Rúnar og hlær við tilhugsunina.

Hægt er að lesa viðtal við Rúnar og Sesselju í Feyki vikunnar sem kom út í dag.

Fleiri fréttir