Smöluðu Sauðadal við erfiðar aðstæður

Bændur í Vatnsdal stóðu í ströngu í gær ásamt 15 björgunarsveitarmönnum við að smala og bjarga fé úr Sauðadal í Húnavatnshreppi. Um var að ræða fyrstu göngur í dalinn, en þær voru áætlaðar í fyrradag þegar óveðrið skall á. Morgunblaðið fjallar um málið í blaðinu í dag.

Pétur Snær Sæmundsson, gangnaforingji og bóndi í Brekkukoti í Vatnsdal, sagði í samtali við Morgunblaðið að aðstæður hafi verið mjög slæmar. Ekki var hægt að nýta hross við smölunina en þess í stað voru menn á dráttarvélum og vélsleðum.

Þá sagði Pétur einnig að þeir hefðu þurft að bjarga töluverðum fjölda fjár úr snjó og að féð hefði í upphafi dags verið mikið klambrað, en reksturinn hefði gengið betur þegar leið á daginn. Auk björgunarsveitarmanna voru 11 gangnamenn að störfum í Sauðadal.

Hross víða innlyksa

Samkvæmt Pétri var gott veður allan tímann í gær og létti það mikið undir. Um 15 kindur fundust dauðar í fönn en Pétur taldi að þær væru þó fleiri.

„Hann taldi að þeir væru með rúmlega þúsund fjár í safninu þegar hann var tekinn tali á sjöunda tímanum í gærkvöldi og þá var um hálfur annar kílómetri eftir í réttirnar með féð. Hann sagði eitthvað af fé eftir en vonaðist til að það væru engin ósköp þar sem margt hefði þegar verið komið til byggða af sjálfsdáðum fyrir óveðrið,“ segir í frétt Morgunblaðsins. Farið verður í eftirleit 23. september.

Í Vatnsdalnum flæddi áin í fyrradag og samkvæmt frétt Morgunblaðsins voru hross víða innlyksa í hólmum og á hæstu punktum í gærmorgun. Pétur sagði að flóðið hefði þá þegar verið töluvert sjatnað. „Í fyrradag þurfti að bjarga bæði fé og hrossum úr flóðunum, en stíf norðanáttin heldur á móti útrennsli árinnar með þessum afleiðingum,“ segir loks í fréttinni.

 

Fleiri fréttir