Snjókoma á annesjum en stöku él inn til landsins
Talsverð ofankoma er á Norðurlandi og sumstaðar hvasst. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er þæfingur á Þverárfjalli og á köflum í Skagafirði, núna á tíunda tímanum. Þæfingsfærð er í Öxnadal og á Öxnadalsheiði. Vegna vinnu við endurbætur á rafkerfi í Strákagöngum má búast við umferðartöfum þar á virkum dögum frá klukkan 8:00-18:00 fram til 22. desember.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er vestan 10-15 m/s og snjókoma á annesjum, en hægari stöku él inn til landsins. Sunnan gola á morgun og bjart að mestu, en líkur á smáéljum. Frost 0 til 7 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Sunnan 5-10 m/s og él, en léttskýjað NA-til á landinu. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Á föstudag:
Gengur í hvassa norðaustanátt með snjókomu. Frost 0 til 8 stig. Slydda eða rigning við S- og A-ströndina síðdegis og hlánar þar.
Á laugardag:
Hvöss norðanátt og víða snjókoma, en þurrt að mestu S-lands. Frost 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
Norðvestanátt og él fyrir norðan, en þurrt og bjart veður syðra. Frost 1 til 10 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Austan- og síðar norðaustanátt, él á víð og dreif og kalt í veðri.