Snjókoma eða slydda í kvöld
Það er varla að hægt sé að skrifa veðurspá að morgni 9. júní en þó skulum við vona að dagurinn í dag sé síðasti slyddu dagurinn þetta sumarið. Spáin er svohljóðandi; “Vaxandi norðanátt, 10-15 og dálítil rigning eða slydda síðdegis, en snjókoma eða slydda í kvöld. Lægir í fyrramálið, en aftur vaxandi norðaustanátt síðdegis og rigning með köflum. Hiti 1 til 5 stig en 4 til 10 stig á morgun.”