Snjólaug íþróttamaður USAH
Íþróttamaður ársins 2014 hjá Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga er Snjólaug María Jónsdóttir, skotíþróttakona og formaður Skotfélagsins Markviss. Þetta er annað ári í röð sem hún hlýtur þessa viðurkenningu. Húni.is greinir frá þessu.
Tilkynnt var um valið í Samkaupum á Blönduósi á Þorláksmessu en í október síðastliðnum var Snjólaug María kosin skotmaður Markviss árið 2014. Hún hlaut þá viðurkenningu einnig árið 2013.
Árangur hennar á nýliðnu tímabili var eftirfarandi.
- Sigur í kv flokki á landsmóti STÍ, Rvk. 17. maí.
- 4. sæti í kv flokk á landsmóti STÍ, Þorlákshöfn 31. maí.
- Sigur í kv flokk á landsmóti STÍ og jöfnum á Íslandsmeti, Blönduós 14. júní.
- 11. sæti í B úrslitum SIH-Open, Alþjóðlegt mót í Hafnarfirði 5.-6. júlí
- 3. sæti í kv flokk á Íslandsmóti STÍ. Rvk 19. júlí.
- Sigur í kv flokk Landsmót STÍ og jöfnun á Íslandmeti, Akureyri 26. júlí.
- Sigur í kv flokk Landsmót STÍ og nýtt Íslandsmet, Húsavík 9. ágúst.
- Sigur í kv flokk Bikarmót STÍ og jöfnun á Íslandsmeti, Akureyri, 6 september. Varð Bikarmeistari kvenna með fullt hús stiga annað árið í röð.
- Sigur á Kvennamótinu SKYTTAN. Rvk 20. september.
- Valin í úrtakshóp Skotíþróttasambands Íslands fyrir Smáþjóðaleikana 2015.