Snjólaug landaði sínum fyrsta sigri
Um síðustu helgi fór fram landsmót í leirdúfuskotfimi (skeet) á Akureyri. Skotfélagið Markviss átti fjóra keppendur á þessu móti. Keppni í kvennaflokki lauk á laugardaginn og að sögn félagsins hafði hún verið æsispennandi en íslandsmet kvenna var jafnað og svo tvíbætt á mótinu.
Þegar kom að úrslitum var Helga Jóhannsdóttir (SIH) efst að stigum, Snjólaug M Jónsdóttir (Markviss) var önnur og Árný G. Jónsdóttir þriðja.
Í úrslitum hafði svo Snjólaug sigur en Helga hafnaði í öðru sæti og Árný varð þriðja.
Snjólaug landaði því sínum fyrsta sigri í sumar og er baráttan í bikarkeppni kvenna orðin ansi hörð en þrjár konur eru efstar og jafnar að stigum þegar 2 mót eru eftir auk bikarmóts.
Í karlakeppninni vann Guðmann Jónasson 1.flokkinn og var annar inn í úrslit á skorinu 107/125 en náði sér ekki á strik í úrslitum og hafnaði í sjötta sæti á mótinu.
Brynjar Þór vantaði örfá stig til að ná inn í úrslit og hafnaði í sjöunda sæti á skorinu 94/125.
Sverrir Snær keppti á sínu öðru móti og stóð sig með sóma og endaði í 3 sæti í byrjendaflokk.
Næsta mót er svo Íslandsmeistaramótið sem haldið verður af Skotíþróttafélagi Suðurlands dagana 27.-28. júlí og mun skotfélagið Markviss að sjálfsögðu eiga keppendur þar bæði í karla og kvennaflokki.
Skotfélagið Markviss minnir á opinn dag á skotsvæði Markviss laugardaginn 20. júlí nk. á milli kl.15.00 og 18.00 en þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að prófa leirdúfuskotfimi og bogfimi, en Indriði Grétarsson formaður Bogveiðifélags Íslands mætir á svæðið og verður með bogfimikynningu.