Snjólaug María íþróttamaður USAH
Íþróttamaður Ungmennasambands Austur-Húnvetninga var valinn við hátíðlega athöfn í gær 29. desember. Sjö tilnefningar bárust frá aðildarfélögum USAH og varð það Snjólaug María Jónsdóttir skotíþróttakona úr Skotfélaginu Markviss á Blönduósi sem hampaði titlinum að þessu sinni.
Snjólaug María vann bæði Íslandsmeistara og bikarmeistaratitil í leirdúfuskotfimi (Skeet) á síðasta keppnistímabili, þá jafnaði hún einnig íslandsmet kvenna á landsmóti á Blönduósi í júní og bætti það svo í tvígang.
Snjólaug vann bæði Íslandsmeistara og bikarmeistaratitil í leirdúfuskotfimi (Skeet) á síðasta keppnistímabili, þá jafnaði hún einnig íslandsmet kvenna á landsmóti á Blönduósi í júní og bætti það svo í tvígang, fyrst á íslandsmeistaramótinu sem fram fór á skotsvæði SFS við Þorlákshöfn og svo aftur á Norðurlandsmeistaramótinu sem haldið var á skotsvæði Markviss á Blönduósi.
Snjólaug keppti á alls níu mótum á síðasta tímabili og vann kvennaflokkinn á fimm þeirra.
Snjólaug keppti á alls níu mótum á síðasta tímabili og vann kvennaflokkinn á fimm þeirra samkvæmt tilkynningu frá Áróðurs og fjölmiðlasviðs skotfélagsins Markviss sem einnig sendi meðfylgjandi myndir.