Snjólaug setti Íslandsmet og varð Íslandsmeistari

Nú er nýlokið Íslandsmeistaramótinu í leirdúfuskotfimi (skeet), en það fór fram á skotíþróttasvæði Skotíþróttafélags Suðurlands dagana 27-28 júlí. Skotfélagið Markviss átti þrjá keppendur á mótinu að þessu sinni, þau Brynjar Þór Guðmundsson, Guðmann Jónasson og Snjólaugu M. Jónsdóttur.

Alls voru skráðir 36 keppendur til leiks frá 6 skotfélögum,allt frá Húsavík suður til Selfoss. Keppni hófst klukkan 10 á laugardegi og voru aðstæður eins og best verður á kosið.

Í kvennaflokki voru sex keppendur og fljótlega varð ljóst að okkar kona ætlaði sér Íslandsmeistaratitilinn. Snjólaug náði forustu strax í annarri umferð og var langefst þegar kom að úrslitum og setti í leiðinni nýtt Íslandsmet!

Efstu menn á íslandsmeistaramótinu í Skeet sem fram fór á skotsvæði SFS um helgina.
Frá vinstri Gunnar Gunnarsson - Ellert Aðalsteinsson - Guðmann Jónasson. Mynd: facebook.com/Skotfélagið-Markviss

Í undanúrslitum hafnaði hún svo í fyrsta sæti og því tryggt að hún myndi skjóta um gullið. Bráðabana þurfti til að útkljá hver myndi mæta Snjólaugu í úrslitum, en þar börðust þær Anný Björk Guðmundsdóttir (SIH) og Dagný Hinriksdóttir (SR) um annað sætið í undanúrslitum, svo fór að Dagný hafði betur og mætti Snjólaugu í úrslitum um gullið. Enn á ný hafði Snjólaug betur og hampaði Íslandsmeistaratitli kvenna árið 2013.

Dagný varð önnur og í þriðja sæti varð Anný Björk. Einnig má geta þess að Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar var eina félagið sem tefldi fram kvennaliði á mótinu og unnu þær því titil í liðakeppni auk þess sem þær settu nýtt íslandsmet í liðakeppni kvenna.

Efstu 6 í final. Mynd: facebook.com/Skotfélagið-Markviss

Eftir fyrri keppnisdag var Gunnar Gunnarsson (SFS) efstur í karlaflokki en á hæla honum komu Örn Valdimarsson og Ellert Aðalsteinsson (SR). Í fjórða sæti var svo okkar maður Guðmann Jónasson ásamt nokkrum öðrum keppendum.

Undan úrslit — með Guðmann Jónasson og Gunnar Gunnarsson. Mynd: facebook.com/Skofelagið-Markviss

Á sunnudeginum hélt svo keppni í karlaflokk áfram og að loknum fimm umferðum var komið að undanúrslitum. Efstu menn voru félagarnir úr SFS þeir Gunnar Gunnarsson og Hákon Þór Svavarsson,næstir komu Ellert Aðalsteinsson og Örn Valdimarsson, báðir úr SR, og síðastir inn í úrslit voru Guðlaugur Bragi Magnússon SA og Guðmann Jónasson Markviss.

Í undanúrslitum varð Gunnar hlutskarpastur með 13 dúfur,Ellert varð annar með 12 dúfur og því ljóst að þeir myndu skjóta um gullið. Þriðji varð Guðmann með 11 dúfur og á eftir honum komu Örn og Hákon með 10 dúfur hvor, því þurfti bráðabana til að útkljá hvor þeirra myndi mæta Guðmanni í úrslitum um þriðja sætið, Hákon vann bráðabanann og var því barátta milli Húnvetninganna um bronsverðlaunin. Að þessu sinni hafði Guðmann betur og hafnaði því í 3 sæti á mótinu.

Þá var komið að því að skjóta um gullið, en úrslit réðust ekki fyrr en á síðasta palli þar sem Ellert innsiglaði sigurinn og hampaði Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð.

Því miður gekk ekki sem skyldi hjá Brynjari að þessu sinni en við eigum von á honum tvíefldum á næstu mót! En framundan eru landsmót á Húsavík og Norðurlandsmeistaramót á Blönduósi. Húni.is segir frá þessu.

Nánari úrslit má sjá á heimasíðu skotíþróttasambands íslands www.sti.is

auk þess sem fjöldi mynda er á facebooksíðu skotf.Markviss. https://www.facebook.com/pages/Skotf%C3%A9lagi%C3%B0-Markviss/48190593328

Fleiri fréttir