Snjómokstursbíll á hliðina í Langadal

Lögreglan á Blönduósi var kölluð út eftir að snjómokstursbíll fór á hliðina í „krapapytti“ sem var veginum í Langadal. Mbl.is greindi frá þessu kl. 14:33 en þá lokaði bíllinn fyrir umferð í aðra áttina og var lögreglan á staðnum til þess að aðstoða ökumenn að komast leiðar sinnar. 

Umferðaóhappið átti sér stað um 500 metra sunnan við Þrándargil þar sem krapadrulla á veginum gerði það að verkum að snjómokstursbíllinn fór á hliðina. Beðið var eftir stórtækum vinnuvélum frá Reykjavík til þess að rétta bílinn við. Um er að ræða 10 hjóla trukk.

 

Fleiri fréttir