Snjór um víða veröld – World Snow Day
Þann 22. janúar nk. verður dagur snjósins haldinn hátíðlegur um víða veröld og verður skíðasvæði Tindastóls þar ekki undanskilið. Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivistar í hreinleika fjallanna.
Skíðasamband Íslands SKÍ ákvað að svara kalli Alþjóðaskíðasambandsins - FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna. Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga börnum og unglingum sem heimsækja fjöllin.
Nú þegar hafa 225 viðburðir verið skráðir hjá Alþjóðaskíðasambandinu í tengslum við Snjódaginn og allt stefnir því í mikið fjör í fjöllum um víða veröld. Nú er bara að vona að Vetur konungur verði hliðhollur skíðiðkendum þennan dag. Hér má sjá Facebook-síðu viðburðarins á heimsvísu.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls er verkefnið hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12 ára og yngri ókeypis á skíði þennan dag.