Snjóruðningar byrgja víða sýn
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
03.04.2014
kl. 13.47
Ökumenn þurfa að hafa í huga að um leið og hlýnar í veðri birtast hjól, vespur, hlaupahjól og þess háttar farartæki í meira mæli á götum og gangstígum.
Þótt lítill eða enginn snjór sé í byggð á stórum hluta landsins þá er því ekki að heilsa víða í þéttbýli á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi.
Á mörgum stöðum hefur snjó verið mokað upp í stóra bingi og ruðninga sem byrgja fólki sýn. VÍS hvetur vegfarendur til að taka tillit til þessarar hættu og foreldra til að fræða börn sín um hana. Jafnframt er rétt að rifja upp hjólareiðareglurnar með börnunum, yfirfara hjólið og stilla hjálminn rétt.
/Fréttatilkynning