Snjóþekja á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi
Það er éljagangur í Skagafirði og sumstaðar komnir hálkublettir. Snjóþekja er á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi utan Fljóta. Enn er varað við mjög ósléttum vegi á Þverárfjalli og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður suðvestan 5-10 m/s og skýjað, en suðaustan 8-13 og dálítil rigning eða slydda síðdegis. Austlægari í kvöld. Norðaustan 8-13 og úrkomulítið á morgun, en mun hvassari á annesjum. Hiti 2 til 7 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Norðaustan 13-15 m/s á Vestfjörðum en annars S-læg átt, 5-10. Rigning og sums staðar slydda inn til landsins, en þurrt að kalla NA-lands. Hiti 2 til 7 stig.
Á sunnudag:
Norðan 13-20 m/s og slydda eða snjókoma NV-til, en annars suðvestan og vestan 8-13 og skúrir eða slydduél. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig, en frystir á Vestfjörðum.
Á mánudag:
Norðvestan 8-13 m/s, snjókoma með köflum og vægt frost N-lands, en skýjað með köflum syðra og hiti 1 til 6 stig.
Á þriðjudag:
Gengur í ákveðna norðaustanátt með slyddu eða snjókomu, en hægar og úrkomulítið V-lands. Fremur svalt í veðri.
Á miðvikudag:
Norðlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma, einkum N- og A-lands. Áfram svalt.
Á fimmtudag (uppstigningardagur):
Útlit fyrir vestlæg átt með skúrum eða éljum.