Snjóþekja eða hálka víða á vegum

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil él. Snjóþekja eða hálka er mjög víða vegum. Sunnan 8-15 m/s og snjókoma eða él á morgun. Frost 1 til 6 stig, en í kringum frostmark á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:

Vaxandi suðaustanátt, víða 13-18 m/s síðdegis. Snjókoma og síðar slydda eða rigning, einkum S- og V-lands. Hlýnandi í bili.

Á mánudag:

Sunnan og suðvestan 10-18 m/s. Snjókoma eða él S- og V-til, en úrkomulítið á NA-verðu landinu. Hiti 1 til 5 stig við SA- og A-ströndina, annars kringum frostmark.

Á þriðjudag:

Suðvestan 8-13 og él, en þurrt og bjart á NA- og A-landi. Víða snjókoma um kvöldið. Frost 0 til 8 stig, mildast syðst.

Á miðvikudag:

Suðlæg eða breytileg átt og víða él, en yfirleitt þurrt NA-lands. Hiti kringum frostmark.

Á fimmtudag:

Norðanátt og snjókoma eða él, en úrkomulítið syðra. Kólnandi veður.

Fleiri fréttir