Snjóþekja og éljagangur á Þverárfjalli og Vatnsskarði

Á Norðvesturlandi er snjóþekja og éljagangur á Þverárfjalli og Vatnsskarði en hálkublettir víðast hvar á láglendi. Suðvestan 8-13 m/s og dálítil rigning eða slydda er í landshlutanum, en síðar él. Hiti 0 til 5 stig. Suðlægari og úrkomulítið í kvöld, en vaxandi suðaustanátt í nótt, 18-23 og rigning á morgun og hlýnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Suðaustan 18-23 m/s og víða talsverð rigning, en úrkomulítið NA-til. Suðlægari og dregur úr vindi og úrkomu síðdegis, fyrst V-til. Hiti víða 5 til 10 stig.

Á fimmtudag:

Suðvestan 8-13 m/s og él V-til, en annars hægviðri og rigning á SA-landi, en slydda eða snjókoma NA-lands. Hiti 0 til 5 stig.

Á föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag:

Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en austankaldi og stöku skúrir eða él með S-ströndinni. Víða frostlaust að deginum, en talsvert frost að næturlagi, einkum í innsveitum.

Fleiri fréttir