Snjóþekja og hálka á vegum
Það er snjóþekja, hálka eða hálkublettir á vegum á Norðurlandi og éljagangur á stöku stað. Siglufjarðarvegur er lokaður. Þæfingsfærð er frá Hofsós að Fljótum. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Norðlæg átt 5-10 m/s og dálítil él er á Ströndum og Norðurlandi vestra.
Hægari og úrkomulítið í nótt. Frost 5 til 10 stig, en kaldara í nótt. Vaxandi austan átt á morgun, 10-18 m/s síðdegis, hvassast á annesjum og dregur úr frosti.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Vaxandi austanátt og dálítil él, hvassviðri eða stormur síðdegis og víða snjókoma, en talsverð slydda eða rigning suðaustantil. Hlýnar lítið eitt.
Á fimmtudag:
Norðaustan hvassviðri eða stormur norðvestantil, en mun hægari vestlæg eða breytileg átt sunnan- og austanlands. Snjókoma fyrir norðan, en dálítil él sunnanlands. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust við suðurströndina.
Á föstudag:
Útlit fyrir stífa norðan- og norðaustan-átt. Él norðan- og austantil, en annars úrkomulítið. Kólnandi veður.
Á laugardag:
Minnkandi norðaustanátt. Él norðan- og austantil, en annars úrkomulítið. Frost 0 til 10 stig, mildast við S-ströndina.
Á sunnudag:
Breytileg vindátt, úrkomulítið og kalt í veðri.