Snýst í fremur hvassa suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri seint á morgun.
Bálhvasst hefur verið á Norðurlandi vestra og hefur Veðurstofan gefið út viðvörun þar sem stormur eða rok (meðalvindi meira en 20-28 m/s) verður víðast hvar á landinu í dag. Einnig má búast við mjög hvössum vindhviðum í éljaklökkum í dag (35-45 m/s). Aftur er búist við stormi víða um land á morgun. Vegir um Þverárfjall, Holtavörðuheiði og Brattabrekku eru lokaðir vegna ófærðar, svo enginn ætti að leggja upp í langferð á milli norður og suðurlands í dag.
Veðrið lagast lítið þar sem önnur lægð er á leiðinni til landsins. Á Veður.is segir í hugrenningum veðurfræðings að eftir vatnsveðrið í gær sé nú aftur komið sannkallað vetrarríki með útsynningsstormi og éljagangi á sunnan- og vestanverðu landinu.
„Dregur þó heldur úr vindi í kvöld og nótt, en næsta lægð er á leiðinni og hvessir aftur með sunnanslyddu eða -rigningu á morgun og hlýnar í bili.
Síðan áfram sviptingar í veðri fram á gamlársdag, en þá virðist loks koma stund milli stríða; gott ef ekki verður bara komið hið ágætast flugeldaveður á gamlárskvöldi þ.a. hægt verður að kveðja árið með stæl.“
Spá fyrir Strandir og Norðurland vestra
Suðvestan 18-25 og él. Hiti um frostmark. Heldur hægari í nótt en sunnan og suðaustan 13-23 og rigning eða slydda á morgun, en snjókoma til fjalla. Hvassast austantil. Hiti 0 til 5 stig. Snýst í fremur hvassa suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri seint á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Minnkandi suðvestanátt og éljagangur vestantil um morguninn en úrkomulítið austanlands. Gengur í norðan 8-15 með snjókomu eða éljum með norðurströndinni um hádegi en norðvestan 15-23 norðaustanlands og úrkomumeira. Norðan 8-15 og él um kvöldið en léttskýjað sunnan jökla. Frost 2 til 10 stig.
Á laugardag (gamlársdagur):
Allhvöss norðanátt og snjókoma eða éljum N- og A-lands, en annars úrkomulítið. Dregur úr vindi og ofankomu síðdegis. Norðlæg átt, 5-10 og víða léttskýjað um miðnætti, en stöku él á N- og A-landi. Frost 2 til 12 stig, kaldast til landsins.
Á sunnudag (nýársdagur):
Vestlæg átt og stöku él, en léttskýjað austanlands. Hlýnar á vestanverðu landinu, en annars kalt í veðri.
Á mánudag:
Útlit fyrir hvassa vestanátt með skúrum eða éljum og hlýnandi veðri.
Á þriðjudag:
Vestlæg átt og rigning eða slydda um landið sunnan- og vestanvert en norðlægari og lítlisháttar snjókoma um tíma norðantil. Hiti 0 til 5 stig en frost 0 til 5 stig norðaustantil.
Spá gerð: 28.12.2016 09:28. Gildir til: 04.01.2017 12:00.