Söfnun á rúlluplasti

Miðvikudaginn 20. júní n.k. fer fram söfnun á rúlluplasti í Húnavatnshreppi. „Þeir aðilar sem ætla að koma rúlluplasti á söfnunaraðila verða að gæta þess að plastið sé tilbúið til flutnings og hæft til endurvinnslu.  Plastið verður að vera þokkalega hreint og í því  mega ekki vera  aðskotahlutir s.s. net eða heyafgangar,“ segir á heimasíðu hreppsins.

Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnavatnshrepps í síma 452-4660/ 4661, eða á netfangið hunavatnshreppur@emax.is fyrir miðvikudaginn 20. júní. nk.

 

Fleiri fréttir