Söfnun á rúlluplasti í Húnavatnshreppi

Þriðjudaginn 28. febrúar nk. fer fram söfnun á rúlluplasti í Húnavatnshreppi en þeir aðilar sem ætla að koma rúlluplasti á söfnunaraðila verða að gæta þess að plastið sé hæft til endurvinnslu og tilbúið til flutnings. Plastið þarf að vera þokkalega hreint og í því mega ekki vera aðskotahlutir t.d. net eða heyafgangar, segir á heimasíðu Húnavatnshrepps.

Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnavatnshrepps í síma 452-4660 / 452-4661 eða á netföngin hunavatnshreppur@emax.is eða jens@emax.is fyrir þriðjudaginn 28. febrúar.

Fleiri fréttir