Söfnun fyrir aðstandendaherbergi á HSN á Blönduósi
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi hófu þann 4. apríl sl. söfnun til þess að útbúa góða og hlýlega aðstöðu fyrir aðstandendur sjúklinga á HSB. Það er gott að geta átt athvarf út af fyrir sig á erfiðum tímum.
Aðstaða þessi verður helguð minningu Sigursteins Guðmundssonar læknis, sem starfaði við stofnunina í hartnær 40 ár. Hann lést þann 20. apríl 2016 og var hann einn af stofnendum þessara samtaka og fyrsti formaðurinn.
Hollvinasamtökin skora á fyrirtæki og velunnara að leggja þeim lið, svo þetta megi takast. Reikningur félagsins er 0307-26-000270 kt: 490505-0400.