Söfnun fyrir nýjum tækjabúnaði á HSB
Hollvinasamtök HSB hafa ákveðið að beita sér fyrir söfnun til að kaupa nýjan tækjabúnað nauðsynlegan til augnlækninga og svokallaðan blöðruskanna. Senda þau nú ákall til Húnvetninga - einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir að leggja þessu málefni lið.
„Ágætu Húnvetningar, nú er svo komið að þörf er á að bæta tækjabúnað HSB. Augnlæknir fæst ekki lengur til að koma og veita Húnvetningum þjónustu sökum úrelts tækjabúnaðar. Felld hafa verið úr gildi lög um augnlækningaferðir eins og það var kallað hér áður og um leið þær skyldur sem ríkið hafði vegna slíkra ferða,“ segir í yfirlýsingu frá Hollvinasamtökunum.
Nýr tækjabúnaður sem uppfyllir kröfur um nútíma lækningar kostar um 600.000 kr. og þar sem ekki er talið í verkahring Heilbrigðistofnunarinnar á Blönduósi að sinna slíkum málum er ekki heldur fjárveiting frá ríkisvaldinu til þess heldur að endurnýja tækin. Þá telja Hollvinasamtökin einnig þörf á að kaupa svokallaðan blöðruskanna en hann kostar um tvær milljónir króna.
Margt smátt gerir eitt stórt. Þeir sem vilja leggja þessu málefni lið geta lagt inn á reikning samtakanna nr: 0307 - 13 – 700270 – kt. 490505-0400.