Söfnun fyrir Pál Þórðarson og fjölskyldu
Í lok janúar greindist 15 ára Blönduósingur, Páll Þórðarson, með krabbamein. Hann er sonur hjónanna Ásdísar Arinbjarnardóttur og Þórðar Pálssonar og á tvær systur, Hrafnhildi Unu 17 ára og Kristínu Helgu 7 ára.
„Hann byrjaði fljótlega í meðferð í Reykjavík og eru veikindin þess eðlis að fjölskyldan þarf að dvelja þar í einhvern tíma. Mikið og erfitt verkefni er framundan, og því viljum við starfsfélagar foreldranna á HSB sýna fjölskyldunni stuðning með því að setja af stað söfnun. Baráttukveðjur, áfram Palli nagli!“ segir í fréttatilkynningu á Húnahorninu.
Þeir sem vilja leggja fjölskyldunni lið geta lagt inn á eftirfarandi bankareikning:
Kt. 701205-0650, bnr: 0307-13-300020