Söfnun fyrir tækjabúnaði gengið vel
„Söfnun fyrir tækjabúnaði hefur gengið vel og búið er að kaupa og afhenda HSB sjónskoðunartæki. Nú stendur yfir söfnun fyrir ómskoðunartæki og stefnt er að því að söfuninni ljúki 1. ágúst 2012,“ segir í tilkynningu frá Hollvinasamtökum HSB á Húna.is.
„Fyrir hönd Hollvinasamtakanna viljum við þakka þeim fjölmörgu aðilum, einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og sveitarfélögum sem sem hafa lagt samtökunum lið með rausnarlegum framlögum,“ segir á Húna.is
„Um leið viljum við segja frá því að HSB hefur gert samning við Sjúkratryggingar Íslands um þjónustu hjartalæknis, lungnalæknis og innkirtlalæknis (sykursýki o.fl.) á HSB. Til þess að þessir sérfræðingar nýtist sem best þarf stofnunin að hafa tækjabúnað við hæfi. Við leitum því enn til velunnara HSB, og munum að margt smátt gerir eitt stórt,“ segir loks í tilkynningu.
Í stjórn Hollvinasamtaka HSB eru:
Ásgerður Pálsdóttir formaður
Margrét Einarsdóttir
Jóhann Guðmundsson
Sigursteinn Guðmundsson
Kári Kárason
Endurskoðendur reikninga eru Ingvi Þór Guðjónsson og Björn Magnússon. Söfnunarreikningur Hollvinasamtaka HSB: 0307-13-700270- kt. 4905050400