Söfnun til styrktar Hrefnu og Sigurði

Stofnaður hefur verið reikningur til styrktar Hrefnu Samúelsdóttur og Sigurði Birni Gunnlaugssyni, en Hrefna liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans og er það ljóst að þetta verður löng barátta.

Hrefna og Sigurður eiga þrjá unga syni og með frjálsum framlögum er hægt að létta undir með þeim í þessari stöðu sem upp er komin.

Þeim sem vilja styðja fjölskylduna er bent á eftirfarandi reikningsnúmer og munum að margt smátt gerir eitt stórt!

Reikningsnúmer: 0159-05-402812 Kennitala: 150576-3509

Fleiri fréttir