Sóknaráætlanasamningar undirritaðir

Samningar vegna Sóknaráætlana landshluta hafa verið undirritaðir og hafa þá samskipti  landshlutasamtaka sveitarfélaga við Stjórnarráðið verið formfest þegar kemur að úthlutun opinberra fjármuna til einstakra verkefna innan landshluta. Með þeim er staðfest nýtt verklag sem einfaldar þessi samskipti, gerir þau skilvirkari og stuðlar að bættri nýtingu fjármuna.

Markmiðið er að færa aukin völd og aukna ábyrgð til landshlutanna við forgangsröðun og skiptingu opinbers fjár sem rennur til verkefna á sviði byggða- og samfélagsþróunar. Í fyrstu eru verkefnin tengd atvinnumálum og nýsköpun, markaðsmálum, menntamálum og menningarmálum. Í kjölfarið er gert ráð fyrir að aðrir þættir byggðamála á borð við velferðarmál og þróun innviða falli undir sama verklag.

Á vef SSNV segir að samtökin hafi umsjón og ábyrgð með gerð sóknaráætlunar Norðurlands vestra og  byggir áætlunin á tölulegum gögnum frá Byggðastofnun og fyrirliggjandi stefnum sem unnar hafa verið um landshlutann á síðustu árum.

Í hlut Norðurlands vestra koma 43.350 mkr á árinu 2013 en samtals eru varð 400 milljónum af fjárlögum ársins 2013 til verkefnisins.

Þau verkefni sem valin voru vegna ársins 2013 byggja öll á upplýsingum sem fram komu á fundi samráðsvettvangs.

  • 1. Markaðsráð Norðurlands vestra
  • 2. Gagnaver við Blönduós
  • 3. Átak í atvinnu- og markaðsmálum í Húnaþingi vestra
  • 4. Markaðs- og kynningarátak í  Skagafirði
  • 5. Dreifnám á Blönduósi
  • 6. Atvinna og menntun til framtíðar

Sjá nánar um einstaka verkefni HÉR

Fleiri fréttir