Sól og hiti í kortunum
Það verður brakandi blíða, sól og læti um hvítasunnuhelgina ef spá Veðurstofunnar gengur eftir fyrir Strandir og Norðurland vestra en búist er við miklum hita allt að 20 stigum. Spáin lítur svona út fyrir daginn í dag og næstu daga: Suðaustan 3-8 m/s og sums staðar lítilsháttar rigning, en léttir til síðdegis. Suðvestan 8-13 og rigning á morgun. Hiti 12 til 17 stig að deginum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga.
Á föstudag:
Sunnanátt, 10-18 m/s, hvassast á annesjum V-til. Víða dálítil rigning eða súld og hiti 8 til 13 stig, en bjartviðri á N- og A-landi og hiti allt að 20 stigum.
Á laugardag:
Suðlæg átt, 5-13 m/s. Dálítil væta á köflum, en þurrt A-til. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag (hvítasunnudagur):
Hæg vestlæg átt. Skýjað V-lands og líkur á þokulofti við ströndina, en léttskýjað að mestu eystra. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á A-landi.
Á mánudag (annar í hvítasunnu) og þriðjudag:
Útlit fyrir hæga austlæga átt, bjart með köflum og milt veður.