Sólin blindar ökumenn
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Gagnlega hornið
30.03.2015
kl. 17.28
„Nú þegar sól er lágt á lofti fjölgar umferðarslysum þar sem orsökin er að sólin blindar sýn ökumanna. Nauðsynlegt er gera það sem unnt er til að tryggja betra útsýni,“ segir í fréttatilkynningu frá sérfræðingi í forvörnum frá tryggingafélaginu VÍS.
Meðal þess sem ökumenn geta gert til að fyrirbyggja slík slys er eftirfarandi:
- Hreinsa framrúðu að utan. Eftir veturinn getur himna hafa myndast utan á sem fer ekki af með venjulegum þvotti. Þá þarf að nota hreinsiefni til ná henni af. Þetta á einkum við um gamlar rúður. Eftir hreinsun er gott að bera efni á rúðuna sem myndar slétta filmu yfir hana og hrindir vatni frá.
- Hreinsa framrúðuna að innan. Rúðuúði eða fíberklútur koma að góðum notum en oft reynist þurr síða úr dagblaði best til að þrífa rúðuna.
- Hreinsa rúðublöð t.d. með tjöruhreynsi, bóni eða öðru. Ef þurrkurnar eru orðnar lélegar skal skipta um þær.
- Hafa ávallt nægan rúðuvökva á tanknum.
- Hafa hliðarspegla hreina.
- Nota sólskyggni og sólgleraugu.
- Hafa bílljósin í lagi og hrein.
- Ef óhreinindi hafa sest á rúðuna á milli ferða borgar sig að hreinsa hana með rúðuvökva áður en lagt er af stað.