Söngkeppni FNV

Söngkeppni FNV fer fram í sal Fjölbrautaskólans á föstudag og hefst klukkan 18:30. Sigurvegari keppninnar mun síðan taka þátt í Söngkeppni Framhaldsskólanna sem haldin verður í vor. Að sögn keppnishaldara verður keppnin í ár sú glæsilegasta til margra ára.

Fjöldi listamanna mun stíga á svið auk keppenda og lofa skipuleggjendur að dómarar verði ekki af verri endanum og að þar megi finna þekkt andlit. Eftir keppnina verður síðan 16 ára ball á Mælifelli þar sem DJ Yngva Eysteins, DJ Atla Má og Kristmundi Axel trylla lýðinn.

Fleiri fréttir