Söngur, tónlist og ungpíunærföt
Í tilefni af Sögulegri safnahelgi 13. og 14. október nk. verður Heimilisiðnaðarsafnið opið báða dagana frá kl. 12.00 – 18.00. Í nýjasta eintaki Gluggans kemur fram að á laugardeginum kl. 15.00 verður boðið uppá sérstaka dagskrá þar sem fram koma Alexandra Chernyshova, óperusöngkona, Sigurdís Sandra Tryggvadóttir, sem leikur á saxafón og Margrét Arna Vilhjálmsdóttir grípur í gítarinn.
Ungar stúlkur rölta um á meðal gesta klæddar ungpíunærfötum frá fyrri hluta 20. aldar. Nú eru allrar síðustu forvöð að sjá Sumarsýningu safnsins „Bútar úr fortíð“ eftir Írisi Ólöfu Sigurjónsdóttur.
Kaffi og kleinur innifalið í aðgangseyri.