Söngur um sumarmál

Samkórinn Björk og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps ætla að breyta sínum árlagu tónleikum sem hafa oft verið  fyrstu helgi í sumri og heitið Söngur um sumarmál. Núna eru sumarpáskar og þess vegna ætla kórarnir að hafa tónleikana þriðjudaginn 12. apríl í Blönduósskirkju kl.20:30 og syngja bara fleiri lög en ekki kalla á fleiri kóra til samstarfs þetta árið.

Söngstjórar eru Þórhallur Barðason og Sveinn Arnason og undirleikarar Elínborg Sigurgeirsdóttir og Elvar Jóhannesson. Flutt verður fjölbreytt söngdagskrá og mun séra Magnús Magnússon á Hvammstanga m.a. ávarpa samkomuna í léttum dúr.
Allir hjartanlega velkomnir.

Fleiri fréttir