Sóttu fótbrotinn mann

Mynd af fésbókarsíðu Björgunarsveitarinnar Strandar.
Mynd af fésbókarsíðu Björgunarsveitarinnar Strandar.

Á tíunda tímanum í gærkvöldi voru björgunarsveitir frá Blönduósi og Skagaströnd kallaðar út til að sækja mann sem fótbrotnaði við neðri brúna yfir Laxá í Refasveit.

Björgunarsveitarfólk þurfti að bera manninn að sjúkrabíl svo hægt væri að flytja hann undir læknishendur. Gengu aðgerðir vel og mun maðurinn hafa verið kominn í sjúkrabílinn og undir læknishendur um kl. 22 í gærkvöldi.

Fleiri fréttir